Berg
Leikskólinn Berg við Kléberg
Á Kjalarnesi hófst leikskólastarf í október 1985 og hét leikskólinn þá Kátakot.Árið 2004 var byggður nýr leikskóli sem fékk nýtt nafn: Berg.
Leikskólinn Berg er staðsettur á yndislegum stað á Kjalarnesi rétt ofan við fjöruna í Hófsvík. Útsýni er einstakt í allar áttir, fjaran, sjórinn, borgin og Esjan. Hér er auðvelt að fylgjast með lífríki í fjöruni ásamt fuglalífi. Auk þess er náttúran hér óþrjótandi efniviður til listsköpunar og leikja.
Á leikskólanum eru tvær deildir og eru þær aldursskiptar. Yngri deildin heitir Dvergasteinn og eldri Álfasteinn. Í leikskólanum geta dvalið 46 börn samtímis á aldrinum eins og hálfs til sex ára.
Einkunnarorð skólans eru leikur, gleði og sköpun.
Stjórnandi
Regína Jóhanna Guðlaugsdóttir
Sími: 566 6039
