Laugardagur, 19 maí, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
Hof.png

Arnarhamar

arnarhamar_myndArnarhamar er sérkennilegur klettastöpull við vesturlandsveg skammt ofan Grundarhverfis.
Nöfnin Arnarhamar og Arnarholt þar skammt frá vísa til hugsanlegrar veru hafarnarins á svæðinu einhvern tíma í fyrndinni.

Að því best er vitað eru ekki til sögulegar heimildir um arnarvarp á Kjalarnesi annars staðar en í Kistufelli, en þar áttu ernir að hafa orpið fram undir 1900, að sögn ónefnds heimildarmanns danska fuglafræðingsins Richard Hörrings sem ferðaðist hér um 1905-08. Fuglsstapi í landi Bakka (örnefni og landamerki), er þó sagður hafa verið varpstaður arnar og fálka. Við Arnarhamar er fjárrétt, skilarétt hreppsbúa Kjalarneshrepps og eru þar vegghleðslur úr grjóti. Sunnan við réttina er trjáræktarreitur Skógræktarfélags Kjalarness.

Lesa má nánari örnefnalýsingu hér.
Arnarhamar.pdf

Endursetja stillingar

Innskráning