Flugeldasala björgunarsveitarinnar
Björgunarsveitin Kjölur hefur endurbætt aðstöðu sína til flugeldasölu. Fjárfest var í tveimur gámum og þeim komið fyrir hlið við hlið á „Sorpu“ planinu.
Eftir nokkra daga vinnu var búið að opna á milli gámanna ásamt því að setja hurðir, gólf, hita og ljós í þá. Þetta er orðin fyrirtaks aðstaða fyrir flugeldasöluna en í framtíðinni nýstast gámarnir einnig sem geymsla fyrir fjölbreyttan útbúnað björgunar
sveitarinnar.
Stöðugt þarf að endurnýja búnað sveitarinnar og var annar jeppi sveitarinnar seldur og Hunday Starex keyptur í staðinn. Þá hefur báturinn hefur verið styrktur og bátagallar endurnýjaðir.Talsverð tjölgung er í útköllum hjá sveitinni ár frá ári. Helst er það vegna bráðaveikinda, umferðaróhappa, eldsvoða og ýmissa slysa á Kjalarnesi og nágrenni.
Allt starf björgunarsveitarinnar byggist á sjálfboðaliðavinnu og fjáraflanir því mikilvægar í daglegum rekstri. Íbúar Kjalarness og Kjós geta enn frekar styrkt hjálparstarfið í heimabyggð með því að kaupa flugelda í flugeldasölunni við Sorpuplanið/Þórnýjarbúð.
Minnum á opnunartíma flugeldasölunnar á Sorpuplani, vestan við Þórnýjarbúð:
30. des kl 13 – 22
31. des kl 10 – 16
Sjá einnig auglýsingu um flugeldasýningu og brennu.
