Íbúafundur í Fólkvangi - áætlun um úrgang
Þriðjudaginn 6. desember kl 20:00 boða hverfisráð Kjalarness og Íbúasamtök Kjalarness til íbúafundar í Fólkvangi. Tilefnið er vinna Umhverfisráðuneytisins við landsáætlun um úrgang landsáætlun um úrgang.
Þetta mál stendur Kjalnesingum nærri þar sem Sorpa urðar allan úrgang af höfuðborgarsvæðinu á Kjalarnesi. Á sínum tíma var sú ráðstöfun afar umdeild og öllum er í fersku minni sú mikla skreðing sem varð á þjónustu Sorpu þegar endurvinnslustöðinni á Kjalarnesi var lokað.
Á þessum fundi verður einblínt á endurvinnslu, flokkun og hvernig bæta megi nýtingu hráefna eða á annan hátt minnka megi myndun úrgangs. Kjalnesingar eru hvattir til að fjölmenna á fundinn. ÁH
