Fimmtudagur, 23 febrúar, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
Fjara.png

Hverfaverkefni – Kjalarnes

Á vefnum Betri Reykjavík geta Kjalnesingar eins og aðrir borgarbúar forgangsraðað fjármunum í tengslum við gerð fjárhagsáætlunar fyrir árið 2012. Fram til 23. janúar geta íbúar sett inn hugmyndir

að smærri nýframkvæmdum og viðhaldsverkefnum í hverfunum og stutt hugmyndir annarra eða hafnað þeim. Óskað er eftir hugmyndum sem geta haft áhrif á umhverfi og eða möguleika til útivistar og samveru, aðstöðu eða tækifæri til leikja eða afþreyingar, bætta aðstöðu og möguleika gangandi vegfarenda eða bætta aðstöðu fyrir notendur strætó í hverfunum.

Eftir 23. janúar verða efstu hugmyndir teknar af vefnum og metnar af fagsviðum borgarinnar. Ef framkvæmd þeirra heyrir undir verkahring Reykjavíkurborgar verða þær kostnaðarmetnar en síðan munu hverfaráðin stilla upp verkefnum sem íbúum gefst kostur á að kjósa um með rafrænum hætti, frá 8. – 13. mars 2012. Upplýsingar um hvernig þessu fjármagni er skipt á milli hverfanna má finna hér. Hafa verður í huga að ekki er verið að kjósa um allar verklegar framkvæmdir á vegum Reykjavíkurborgar. Mun meira verður framkvæmt í hverfunum á næsta ári. Kjalnesingar eru hvattir til að kynna sér vefinn og taka virkan þátt í því að koma með og velja raunhæfar hugmyndir til að gera borgina enn betri fyrir alla íbúa hennar. 

 Þeir sem áhuga hafa á að setja inn hugmynd að hverfaverkefni og gefa hugmyndum annarra vægi sitt verða að vera skráðir notendur á Betri Reykjavík (innskráning fer fram hér).  Síðan er hverfið valið og þar er þá hægt að skoða allar þær hugmyndir sem nú þegar er komnar fyrir viðkomandi hverfi, svo og er hægt að gefa þeim vægi sitt nú eða setja inn nýja hugmynd.

Á vefnum Betri Reykjavík er lýsing á hvað fellur undir nýframkvæmdir og viðhaldsverkefni. Nánari upplýsingar er að finna á www.betrireykjavik.is.·

Kjalnesingar eru hvattir til að fara inn á vefinn fyrir 23. janúar og koma á framfæri hugmyndum að smærri viðhaldsverkefnum eða nýframkvæmdum og taka þannig virkan þátt í ákvarðanatöku varðandi umhverfi sitt. Bestu hugmyndirnar koma síðan til framkvæmdar á þessu ári. 

Þri feb 28 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Fim mar 01 @18:00 - 07:30eh
Bókabíllinn á Kjalarnesi
Þri mar 06 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Þri mar 13 @10:30 - 11:00fh
Bókabíllinn við leikskólann
Þri mar 13 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Fim mar 15 @18:00 - 07:30eh
Bókabíllinn á Kjalarnesi
Þri mar 20 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Endursetja stillingar

Innskráning