Laugardagur, 19 maí, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
Hof.png

Íbúafundurinn um landsáætlunina

Á fróðlegum fundi vegna landsáætlunar um úrgang kættust fundargestir mjög þegar frummælandi tók undir gagnrýni vegna lokunar endurvinnslustöðvar Sorpu.

Fundurinn var haldinn í Fólkvangi þar sem Kjartan Ingvarsson lögfræðingur hjá Umhverfisráðuneytinu kynnti áætlunina. 

Landsáætlunin er stefnumörkun til framtíðar í úrgangsmálum. Í fyrsta lagi á áætlunin á að innihalda samantekt um stöðuna í dag. Þá verður stefna stjórnvalda  mótuð. Hvernig ætlum við að draga úr myndun úrgangs og hvernig ætlum við að auka flokkun úrgangs? Í þriðja lagi verða sett markmið varðandi söfnun og endurvinnslu. 

 Í framhaldi af kynningu Kjartans sköpuðust góðar umræður. Spurt var hvaða skynsemi væri í að lengja leiðir til að losa sig við úrgang. Hörð gagnrýni kom fram á lokun endurvinnslustöðvar Sorpu á Kjalarnesi og viljaleysi Sorpu og borgarinnar til að ræða ýtarlegar tillögur íbúanna. Fram kom sú skoðun að þátttaka í endurvinnslu hefði að undanförnu hrakað verulega á Kjalarnesi. Sú stefna sem borgin hefði samþykkt við sameiningu um vistvænt Kjalarnes hefði ekki gengið eftir. Bent var á að umhverfisátakið „vistvænt í verki“ sem var á Kjalarnesi fyrir meira en 15 árum hefði skilað miklu en nú vantar mikið upp á að því hefði verið fylgt eftir. 

 Með meiri nálægð og betra aðgengi að endurvinnslustöðum er mikið líklegra að ná árangri í flokkun. Rætt var um ýmiss útfærsluatriði við flokkunarílát, grendargáma og endurvinnslustöðvar. Bent var á að það sé öfugsnúið að flytja garðúrgang langar leiðir í burtu af Kjalarnesi með tilheyrandi kostnaði í stað þess að nýta hann hér á staðnum t.d. til jarðgerðar. Skynsamlegast sé að nýta lífrænan úrgang sem næst uppruna sínum. Þá var bent á að grendargámar á Kjalarnesi væru aðeins tveir það þyrfti einnig að vera hægt að losna við áldósir og gler. Gámarnir eru oft fullir þegar komið er með úrgang og bagalegt sé að þegar rigni standi þeir alltaf í djúpum polli. Allt þetta sé afar neikvætt sé ætlunin að hvetja íbúa til aukinnar flokkunar.

Hvar er fræðsla og áróður um hagstæðari innkaup m.t.t. verndar náttúrunnar? Í dag eru engar skyldur til staðar um kynningu á úrvinnslu hráefna. Hvað á t.d. að gera við sparperur? Hvert á ónýta brauðristin að fara? Hvað verður um þá hluti sem við förum með til endurvinnslu?  Hvaða kröfu á að gera til þjónustu á endurvinnslustöðvum? Bent var á að umhverfisáætlun þurfi að vera hluti af menntastefnu í grunnskóla. 

 Kjartan segir að til staðar þurfi að vera hagrænir hvatar til að hamla urðun. Segir að urðun sé mjög ódýr á Íslandi miðað við nágrannalönd okkar. Hugsanlegt er að banna urðun lífræns úrgangs í náinni framtíð en hjá ESB er til skoðunar að banna slíka urðun eftir 10 – 15 ár. Segir Kjartan að megin reglan verði sú að fólk geti skilað gjaldfrjálst. Þá er fólk líklegra til að nýta endurvinnslu ef lausnin er í tunnum bakvið hús fremur en að fara að keyra langar leiðir í endurvinnslustöðvar.

Umhverfisráðuneytið óskar eftir ábendingum frá íbúum til að nýta inn í vinnuna við þessa áætlun. Þessar ábendingar geta verið um hvaðeina sem varðar þann úrgang sem við erum með allt frá fyrirkomulagi að ílátum fyrir flokkun á heimilum, aðgengi að endurvinnslugámum eða stöðvum eða úrvinnslu úrgangs. Ekki er nauðsynlegt að koma með mótaðar hugmyndir heldur eru almennar ábendingar einnig vel þegnar og óskast sendar á: Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það. .

Hér má nálgast kynningu Kjartans og Hér er tengill á Umhverfisráðuneytið.

Þri maí 22 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 22 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 22 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Prjónaklúbburinn Esja - Handverkshópur
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Fim maí 24 @15:00 - 05:00eh
Félagsstarf 60 ára og eldri
Þri maí 29 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 29 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 29 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 30 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Endursetja stillingar

Innskráning