Árangur fyrir alla
Verkefni sem hvetur unglinga til hreyfingar hefur verið hleypt af stokkunum. Þetta er samvinnuverkefni UMFK, Flógyn og Klébergsskóla fyrir 14 - til 16 ára unglinga og verður í íþróttahúsinu kl. 18 - 19 alla miðvikudaga.
Hér er höfðað til grundvallar hugsjóna ungmennafélaga um íþróttir fyrir alla án kröfunnar um einstaklingssigra. Markmiðið er að ná til unglinga sem af einhverjum ástæðum eru ekki að stunda íþróttir. Of mikil krafa um keppnisárangur veldur miklu brottfalli úr íþróttum. Margir unglingar eru á því að ef hægt væri að mæta á „æfingar“ til þess eins að hafa gaman af, myndu sennilega fleiri mæta og brottfallið yrði minna.
Mikilvægi hreyfingar verður seint ofmetið. Þetta er uppeldislegt atriði sem þarf að vera hluti af lífstíl allra því. Ávinningurinn af því að hreyfa sig er því ekki bara að fyrirbyggja sjúkdóma eða halda þeim í skefjum heldur líka að auka vellíðan og lífsgæði almennt. Nánari upplýsingar eru á vef Ungmennafélags Kjalnesinga www.umfk.is. ÁH
