Laugardagur, 19 maí, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
Fjara.png

Páll Heimir fær viðurkenningu

Jú, þetta var stórmekileg ráðstefna í Barcelona segir Kjalnesingurinn Páll Heimir Pálson í samtali við tíðindamann Kjalnesings. Tilefnið er að í annað sinn á nokkrum mánuðum buðu stjórnendur Google fyrirtækisins Páli á ráðstefnu sem nú var haldin í Barcelona. Þar hittust í fyrsta skipti, Geo Modeler(-ar), sem Páll tilheyrir, frá Evrópu og Miðausturlöndum sem í sjálfu sér er sögulegt. Þetta var ríflega hundrað manna hópur 3D „modelera“, „mappera“ sem vinna að kortagerð og síðan Panoramio's sem hlaða ljósmyndum in á GE. Á ráðstefnunni, sem haldin var á Hotel Fira Palace, Barcelona, voru 30 3D modeler-ar, 20 panoramio's og 60 mappers. Það var því afar lærdómsríkt að kynnast og vinna með þessum mismunandi hópum því þrátt fyrir að þeir séu ólíkir var meira en nóg að snúast, spá og spekulera með 3D Modeler-unum.

Páll segir að persónulegur ávinningur af þessari ferð sé mikill. Nú hefur hann formlega fengið réttindi til þess að lagfæra Google Earth hér í nágreninu en það eru mikil forréttindi. Enn fremur er verið að vinna að því að GAIA ehf sem er félag hans og fleiri um þessa vinnu verði viðurkennt sem opinber Google þjálfunarmiðstöð (Official Google Training Center) sem eitt og sér eru stórfréttir. Páll segir að sé vel haldið á málum sé ekkert því til fyrirstöðu að GAIA ehf þjónusti Norðurlöndin og jafnvel norður Evrópu. 

Annar ávinningur Páls og félaga hjá GAIA ehf er einnig öll þau sambönd sem hann hefur stofnað til allt frá Amman í Jórdaníu til Uruguay. Þá er það gífurlega mikils virði að hafa augliti til auglitis hitt marga af þeim mönnum sem að GE og SketcUp standa. Þá segir Páll það hafa verið ánæguleg viðurkenning sem þeir félagar hlutu þegar GAIA ehf var nú á dögunum úthlutað styrk úr Nýsköpunarsjóði Landsbanka Íslands. ÁH.

Þri maí 22 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 22 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 22 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Prjónaklúbburinn Esja - Handverkshópur
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Fim maí 24 @15:00 - 05:00eh
Félagsstarf 60 ára og eldri
Þri maí 29 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 29 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 29 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 30 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Endursetja stillingar

Innskráning