Sundabraut sett á ís
Sundabraut og bætt umferðaröryggi á Vesturlandsvegi hefur lengi verið eitt af stóru hagsmunamálum Kjalnesinga. Nú virðist að framkvæmdum við Sundabraut hafi verið slegið á frest. Þess í stað mun ríkisstjórnin setja einn milljarð á ári næstu tíu árin í tilraunaverkefni um eflingu almenningssamgangna á höfuðborgarsvæðinu. Fróðlegt verður að sjá hve miklu af þessum fjármunum verður varið í bættar almenningssamgöngur á Kjalarnesi.
Sjá nánar hér á visir.is.
