Þæfingarnámskeið
Á vegum Brautarholtssafnaðar er boðið upp á þæfingarnámskeið í Klébergsskóla laugardaginn 25. febrúar. Miðað er við 10 manna hópa og leitast við að gefa öllum áhugasömum Kjalnesingum kost á að taka þátt í þessu námskeiði. Fyllist námskeiðið á laugardaginn verður það endurtekið síðar. Í þetta verkefni fékkst kr. 60þús styrkur frá hverfisráði Kjalarness.
Námskeiðið er frítt fyrir utan efniskostnað.
Sjá nánar handverksnámskeið. Mikilvægt er að skrá sig sem fyrst hjá:
Svölu Sigríði Thomsen: s:862 9162
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Írisi Fjólu Bjarnadóttur:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Guðrúnu Þorláksdóttur / Ullarljós.is:
Þetta tölvupóstfang er varið gegn ruslpóstsþjörkum, Þú verður að hafa JavaScript virkt til að sjá það.
Kjósaringar hafna háspennulínu í Hvalfirði
Hreppsnefnd Kjósarhrepps segist vera alfarið á móti aukinni mengandi iðnaðaruppbyggingu í Hvalfirði og telur að iðnaðarstarfsemin á Grundartanga hafi þegar valdið íbúum og fasteignaeigendum í Kjósarhreppi ómældu tjóni. Hreppsnefndin hefur því hafnað hugmyndum Landnets hf. um að leggja nýja raforkulínu gegnum hreppinn.
Nánar um málið á mbl.is og á kjos.is
