Laugardagur, 19 maí, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
haus-01.png

„Bakkaberg“ og íbúalýðræðið!


Vinnubrögðin við sameiningu leikskólans Bergs við leikskólann Bakka í Staðarhverfi eru forkastanleg valdníðsla.  Burt séð frá

þeirri skoðun minni að leikskólinn á Bergi geti haft hag að þessari sameiningu er afar furðulegt að upplifa slík gerræðisleg vinnubrögð á sama tíma og talað er um að færa valdið til fólksins og auka íbúalýðræði. Það gildir kannski einungis „niður“ í Reykjavík og ekki vert að leita álits Kjalnesinga enda er þeim ekki einu sinni treystandi til að sitja í sínu hverfisráði.


Þann 28. júní var hengd upp auglýsing um sameiningu leikskólanna Bergs og Bakka. Boðað var til fundar um þessa sameiningu án þess að starfsmenn leikskólans Bergs hefðu nokkra vitneskju um þessa fyrirhuguðu sameiningu.


Til að rifja upp forsögu þessa máls og hvernig hún horfir við foreldrum á Kjalarnesi er að í  nóvember sl. berst það út að þáverandi leikskólastjóri sé að hætta. Óvissa starfsfólks og foreldra er mikil og þrátt fyrir að nýr leikskólastjóri hafi verið ráðinn þann 6. desember fær starfsfólk ekki upplýsingar um það fyrr en í lok desember.  Nýr leikskólastjóri hafi þá þegar verið ráðinn tímabundið meðan fundinn sé flötur á sameiningu við Klébergsskóla. Mikið var talað um nauðsyn þess að hafa samráð við íbúa á Kjalarnesi um þessi mál þannig að ekki skapist meiri tortryggni og óvissa sem sjálfkrafa valdi andstöðu. Með það að leiðarljósi gerði menntaráð eftirfarandi bókun þann 13. janúar sl. þegar stofnaður var starfshópur um þetta verkefni. 


2. Lagt fram afrit af bréfi, dags. 16. des. sl., til leikskólaráðs varðandi skólamál á Kjalarnesi.
Svohljóðandi tillaga samþykkt:
Menntaráð felur fræðslustjóra að stofna starfshóp í samráði við sviðstjóra Leikskólasviðs á grundvelli samþykktar í leikskólaráði 16. desember 2009 um hugsanlegan samrekstur leik- og grunnskóla á Kjalarnesi. Starfshópinn skipi starfsmenn frá Leikskólasviði og Menntasviði, ásamt stjórnendum og fulltrúum foreldra beggja skólastiga. Meginverkefni hópsins er að móta tillögur um samrekstur, samvinnu og samstarf leikskóla og grunnskóla á Kjalarnesi. Starfsfólk, foreldrar, börn og ungmenni á báðum skólastigum taki virkan þátt í þessu verkefni.



Nú starfaði þessi nefnd í hálft ár og komst að þeirri niðurstöðu að sameining við Klébergsskóla sé ekki tímabær en aukið samstarf sé fýsilegt. Lokaskýrslu átti að skila á fundi þann 16. júní sl. en var síðan frestað og hefur sá fundur enn ekki verið tímasettur.  Nú er tilkynnt um sameiningu við annan leikskóla. Það er gert án nokkurs samráðs og vekur eðlilega upp fjölmargar spurningar um hvers vegna þessi málamyndanefnd var stofnuð. Er það svo að þar sem niðurstaða hópsins er yfirvöldum ekki að skapi skal samt fara sínu fram og gegn áliti hennar, hunsa vilja foreldra og að allt það samráð sem áður var fagurlega talað um og hafið til skýjanna sé einskis virði. Með réttri kynningu og trúlega hafa þessa sameiningu inni seim einn kost hefði mátt komast hjá mikilli óvissu og írafári hjá starfsfólki og foreldrum.



Í gegnum árin höfum við þónokkur dæmi um hópa sem skipaðir eru til að fjalla um breytingar og framtíðaskipan mála á Kjalarnesi án þess að nokkur fulltrúi íbúa komi að þeirri vinnu. Er ekki mál til komið að breyta þessum vinnubrögðum? Sýnið virðingu og nýtið þekkinguna sem til er á staðnum í stað þess að beita stöðluðum og niðurnjörvuðum rammalausnum. Kjalnesingar fara fram á að augljós sérstaða Kjalarness sé viðurkennd og þeir hafðir með í ráðum um fyrirhugaðar breytingar sem þá varða.


Þessi grein birtist í 7. tölublaði Kjalnesings.

Ásgeir Harðarson

Á döfinni

Maí 2012
S M Þ M F F L
29 30 1 2 3 4 5
6 7 8 9 10 11 12
13 14 15 16 17 18 19
20 21 22 23 24 25 26
27 28 29 30 31 1 2
Þri maí 22 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 22 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 22 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Prjónaklúbburinn Esja - Handverkshópur
Mið maí 23 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Fim maí 24 @15:00 - 05:00eh
Félagsstarf 60 ára og eldri
Þri maí 29 @17:00 - 07:00eh
Stormur YNGRI í Þórnýjarbúð
Þri maí 29 @19:00 - 09:00eh
Stormur eldri deild
Þri maí 29 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Mið maí 30 @20:00 - 10:00eh
Kjölur í Þórnýjarbúð
Endursetja stillingar

Innskráning