Fimmtudagur, 23 febrúar, 2012
   
Letur stærð
Innskráning
haus-01.png

Íbúasamtök Kjalarness

Atriðaskrá greina
Íbúasamtök Kjalarness
Stjórn Í.K.
Samþykktir Í.K.
Stefnumörkun Í.K.
Allar síður

Ný stjórn ÍK

Ný stjórn íbúasamtaka Kjalarness (ÍK) kom saman til að skipta með sér verkum og ráða ráðum sínum.

Fráfarandi stjórn er þakkað fyrir öll góð verk og þess vænst að við njótum áfram stuðnings þeirra í öllum störfum okkar. Jafnframt þakkar ný stjórn fyrir stuðninginn.

Tilgangur ÍK er að vinna að framfara- og hagsmunamálum íbúanna ásamt því að stuðla að samstarfi og samhug okkar. Fjölmörg aðkallandi mál eru framundan og mörg þeirra þannig að stuðningur og náinni samvinna við önnur félög á Kjalarnesi er mikilvæg til að auðvelda framgang þeirra.  Flæði upplýsinga milli íbúanna og til fulltrúa í stjórnum félaga er afar mikilvægt og vill stjórn ÍK efla það m.a. með því að virkja vefinn www.kjalarnes.is.  Vefurinn fær andlitslyftingu og stofnuð verður ritnefnd um hann í þeirri von að kjalarnes.is verði lifandi samskipta- og fréttavefur fyrir Kjalnesinga.  


Eitt af fyrstu verkefnum nýrrar stjórnar ÍK verður að standa fyrir félagadegi í byrjun nóvember þar sem öll starfandi félög á Kjalarnesi eru hvött til að kynna það starf sem fram fer á þeirra vegum. Vonast er til góðrar almennrar þátttöku því markmiðið er að vekja athygli á fjölbreyttu og öflugu starfi sem fram fer í þeim félögum sem starfa á Kjalarnesi. Þetta verkefni verður kynnt í félögunum á næstunni og vonast stjórn ÍK eftir góðum undirtektum.                                           
                                                                                                 Ásgeir Harðarson
                                                                                                 formaður ÍK

 



Á döfinni

Febrúar 2012
S M Þ M F F L
29 30 31 1 2 3 4
5 6 7 8 9 10 11
12 13 14 15 16 17 18
19 20 21 22 23 24 25
26 27 28 29 1 2 3
Þri feb 28 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Fim mar 01 @18:00 - 07:30eh
Bókabíllinn á Kjalarnesi
Þri mar 06 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Þri mar 13 @10:30 - 11:00fh
Bókabíllinn við leikskólann
Þri mar 13 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Fim mar 15 @18:00 - 07:30eh
Bókabíllinn á Kjalarnesi
Þri mar 20 @20:00 - 10:00eh
Fótbolti
Endursetja stillingar

Innskráning